Friðrik Ingvarsson (Birtingarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Ingvarsson húsasmiður fæddist 2. apríl 1926 og lést 17. janúar 2004.
Foreldrar hans voru Ingvar Þórólfsson útgerðarmaður, húsasmiður, f. 27. mars 1896, d. 13. apríl 1975, og kona hans Þórunn Friðriksdóttir húsfreyja, f. 28. apríl 1901, d. 13. júlí 1972.

Börn Þórunnar og Ingvars:
1. Þórhildur Ingvarsdóttir húsfreyja í Mýrdal, f. 25. nóvember 1922, d. 8. ágúst 2000.
2. Þórunn Ingvarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. desember 1923 í Birtingarholti, d. 6. október 2013.
3. Friðrik Ingvarsson í Bandaríkjunum, f. 2. apríl 1926, d. 17. janúar 2004.
4. Hulda Ingvarsdóttir Berndsen húsfreyja í Reykjavík, f. 10. maí 1927, d. 28. apríl 2000.
5. Vigfús Ingvarsson, f. 1. nóvember 1928.
6. Hafsteinn Ingvarsson tannlæknir, f. 12. október 1932 í Birtingarholti, d. 29. janúar 2014.
7. Hafdís Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 2. mars 1935 í Birtingarholti, d. 26. janúar 1997.
8. Ingi Ingvarsson, f. 22. apríl 1937 í Birtingarholti, d. 14. ágúst 2018.
9. Jóna Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 25. júní 1939 í Birtingarholti.
10. Þórólfur Ingvarsson sjómaður á Akureyri, f. 16. apríl 1944 í Birtingarholti, d. 20. júlí 2015.

Friðrik var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði húsasmíði, vann við þær, en flutti til Bandaríkjanna, bjó í Seattle og vann við húsasmíðar og skipasmíðar.
Þau Matthildur giftu sig, eignuðust eitt barn, en skildu
Þau Grace giftu sig, búa í Seattle í Bandaríkjunum.

I. Kona hans, skildu, var Matthildur Nikulásdóttir, síðar á Akranesi, fædd 2. júní 1924, d. 1. apríl 2017.
Barn þeirra:
1. Ingvar Friðriksson sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, síðar starfsmaður hjá skipamiðlun, f. 25. desember 1944 í Birtingarholti.

II. Kona hans Grace Ingvarsson. Þau eru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.