Fanney Guðmundsdóttir (Ásnesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Fanney Guðmundsdóttir frá Ásnesi við Skólaveg 7, húsfreyja fæddist þar 22. maí 1934.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905 á Leirum u. Eyjafjöllum, d. 14. september 1981, og fyrri kona hans Sigrún Guðmundsdóttir frá Litla-Skarði í Stafholtstungum í Borgarfirði, d. 18. ágúst 2008.

Börn Guðmundar og Sigrúnar:
1. Fanney Guðmundsdóttir, f. 22. maí 1934 í Ásnesi. Maður hennar Jón Hólmgeirsson, látinn.
2. Andvana stúlka, f. 9. júlí 1935 í Hljómskálanum, (Hvítingavegi 10).
3. Hrefna Guðrún Guðmundsdóttir, f. 11. september 1936 í Hljómskálanum, d. 2. maí 2010. Maður hennar Guðbrandur Eiríksson, látinn.
4. Unnur Guðmundsdóttir, f. 10. júlí 1938 í Hljómskálanum, d. 25. apríl 1997. Maður hennar Ólafur Ágústsson, látinn.
5. Már Guðmundsson málari, f. 19. ágúst 1939 í Hljómskálanum. Kona hans Jóhanna Kristjánsdóttir.

Börn Sigrúnar og Þórðar Ólafssonar:
6. Gylfi Þórðarson, f. 4. október 1943. Kona hans var Hrönn Kristjánsdóttir.
7. Dagný Þórðardóttir, f. 10. mars 1945, d. 12. mars 1982. Maður hennar var Reynir Ríkharðsson.
8. Andvana drengur.
9. Rúnar Þór Þórðarson, f. 17. desember 1951. Fyrri kona hans var Björk Birgisdóttir. Síðari kona hans Margrét Guðfinnsdóttir.

Börn Guðmundar og Herdísar Einarsdóttur Höjgaard:
1. Ólöf Díana Guðmundsdóttir, f. 6. júní 1946 á Lyngbergi. Maður hennar Njáll Ölver Sverrisson.
2. Jón Einar Guðmundsson, f. 18. apríl 1950 á Lyngbergi. Kona hans Sólveig Snorradóttir.
3. Viðar Guðmundsson, f. 24. júní 1957 á Lyngbergi. Kona hans Lára Emilsdóttir.
4. Sæunn Helena Guðmundsdóttir, f. 19. nóvember 1960 á Lyngbergi. Maður hennar Haraldur Haraldsson.

Fanney var með foreldrum sínum, en þau skildu, er hún var um 14 ára gömul. Hún var með föður sínum og síðari konu hans á Lyngbergi 1949.
Þau Jón kynntust í Eyjum, giftu sig 1955, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu í Flatey á Skjálfanda í 7 ár og frá 1961 í Grindavík.
Jón lést 2001.

I. Maður Fanneyjar, (9. maí 1955), var Jón Hólmgeirsson frá Flatey á Skjálfanda, sjómaður, síðar bæjarfulltrúi og bæjarritari í Grindavík, f. 15. mars 1934, d. 11. maí 2001. Foreldrar hans voru Hólmgeir Jónatansson, f. 6. mars 1899, d. 18. nóvember 1983, og Nanna Jónsdóttir, f. 27. febrúar 1903, d. 18. júlí 1956.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Jónsson, f. 25. maí 1954, d. 22. apríl 2006. Kona hans Alda Bogadóttir.
2. Hólmgeir Jónsson, f. 14. ágúst 1955. Kona hans Helga Auður Jónsdóttir.
3. Hörður Jónsson, f. 17. apríl 1959. Kona hans Helga Dagmar Guðmundsdóttir.
4. Smári Jónsson, f. 22. júlí 1960. Kona hans Sigríður Loftsdóttir.
5. Bragi Jónsson, f. 29. september 1962. Kona hans Marta Ríkey Hjörleifsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.