Erna Óskarsdóttir (Sólhlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Erna Óskars Óskarsdóttir.

Erna Óskars Óskarsdóttir húsfreyja fæddist 19. júlí 1934 í Reykjavík og lést 24. desember 2018 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Óskar Gíslason skipstjóri, f. 6. mars 1913, d. 19. janúar 1983, og kona hans Lára Fríða Ágústsdóttir húsfreyja, f. 9. júlí 1912 í Reykjavík, d. 25. júní 2001.

Börn Láru Fríðu og Óskars:
1. Erna Óskars Óskarsdóttir húsfreyja, f. 19. júlí 1934 í Reykjavík. Maður hennar Kári Óskarsson múrarameistari.
2. Hrefna Óskars Óskarsdóttir fóstra, býr í Bandaríkjunum, f. 30. september 1943 í Eyjum. Maður hennar John Minner.
3. Ágústa Óskars Óskarsdóttir Kettler matráður, f. 26. maí 1946 í Eyjum. Maður hennar Ernst Kettler.

Erna var með foreldrum sínum, á Heimagötu 25 og Sólhlíð 3.
Þau Kári giftu sig 1957, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Löngubrekku 31 í Kópavogi frá árinu 1961.
Erna lést 24. desember 2018.

I. Maður Ernu, (26. apríl 1957), er Kári Óskarsson frá Sunnuhól við Vestmannabraut 26, múrarameistari, f. 25. júlí 1931.
Börn þeirra:
1. Hreiðar Haukur Kárason stýrimaður í Noregi, f. 4. september 1955 í Eyjum. Kona hans Marit Eiriksson, látin.
2. Óskar Kárason kerfisfræðingur í Danmörku, f. 26. júlí 1958 í Reykjavík. Barnsmóðir hans María Kristjánsdóttir. Kona hans Vibeke Harders.
3. Ágúst Kárason læknir, f. 16. desember 1960. Kona hans Svanfríður Helga Ástvaldsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.