Elfa Dröfn Ingólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Elfa Dröfn Ingólfsdóttir.

Elfa Dröfn Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur fæddist 28. september 1962 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Ingólfur Theodórsson frá Siglufirði, netagerðarmeistari, f. 10. nóvember 1912, d. 14. mars 1988, og kona hans Sigríður Inga Sigurðardóttir frá Skuld, húsfreyja, f. 14. apríl 1925.

Börn Sigríðar og Ingólfs:
1. Sigurður Ingi Ingólfsson netagerðarmeistari, f. 28. janúar 1945 á Heiðarvegi 66. Kona hans Jóna Berg Andrésdóttir.
2. Elín Björg Ingólfsdóttir, f. 7. desember 1946 á Heiðarvegi 36, d. 13. desember 1946.
3. Hugrún Hlín Ingólfsdóttir bankastarfsmaður, f. 25. ágúst 1948 á Heiðarvegi 36, d. 3. maí 2003. Fyrrum maður hennar Alfreð Guðmundsson. Fyrrum maður hennar Jónas Traustason. Maður hennar Baldur Þór Baldvinsson.
4. Kristín Hrönn Ingólfsdóttir snyrtifræðingur í Danmörku, f. 23. október 1960. Maður hennar Pierre Schwartz.
5. Elfa Dröfn Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur, tvíburi, f. 28. september 1962. Maður hennar Páll Kristrúnar Magnússon.
6. Harpa Fold Ingólfsdóttir fisktæknir, tvíburi, f. 28. september 1962.
Barn Ingólfs með Láru Sigurðardóttur:
7. Jóhanna Margrét Ingólfsdóttir, vann við matreiðslu- og þjónustustörf, f. 13. febrúar 1933, d. 11. júní 2014.
Barn Ingólfs með Klöru Helenu Nilsen:
8. Kornelía Sóley Ingólfsdóttir verslunar- og skrifstofumaður, starfsmaður bókasafns, f. 2. október 1937, d. 6. desember 2010.
Barn Ingólfs með Unni Fjólu Bjarnadóttur, var ættleitt.:
9. Amalía Stefánsdóttir, f. 17. september 1941.

Elfa var með foreldrum sínum.
Hún varð stúdent í M.S. 1982, lauk námi í H.S.Í. í júní 1986.
Hún var hjúkrunarfræðingur á gjörgæslu Landakotsspítala frá mars 1986 til 1991, hjúkrunarfræðingur á Reykjalundi frá 1991, sérfræðingur í endurhæfingarhjúkrun lungnasjúklinga á Reykjalundi frá 2022.
Þau Páll giftu sig 1983, eignuðust tvö börn.

I. Maður Elfu, (17. desember 1983), er Páll Kristrúnar Magnússon stuðningsfulltrúi og ráðgjafi á endurhæfingargeðdeild Lsp á Kleppi til 2022, f. 1. apríl 1960. Foreldrar hans Magnús Pálsson járnsmíðameistari, f. 1. desember 1945, d. 10. júlí 1984, og kona hans Kristrún Hreiðarsdóttir frá Reynisvatni í Mosfellssveit, húsfreyja, f. 24. júní 1923, d. 24. janúar 2022.
Börn þeirra:
1. Agnes Drífa Pálsdóttir háriðnarmeistari, lærir byggingaverkfræði, býr í Danmörku, f. 11. ágúst 1986. Maður hennar Nicolai Geert Aarøe.
2. Róbert Hreiðar Pálsson verkamaður við rafvirkjun, f. 1. júlí 1995.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Elfa.
  • Hjúkrunarfræðingatal I-III. Hjúkrunarfélag Íslands 1969-1992.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 4. febrúar 2022. Minning Kristrúnar Hreiðarsdóttur.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.