Blik 1974/Blómarósir í Herjólfsdal

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1974


ctr


BLÓMARÓSIR Í HERJÓLFSDAL.


Hafi Blik átt þess kost, hefur það ávallt birt með mikilli ánægju myndir af Vestmannaeyískum blómarósum, hvort sem um er að ræða eldri eða yngri myndir. Hér birtum við mynd, sem líklega er tekin 1917 eða þar um bil.
Frá vinstri: Sigríður Þorvarðardóttir, prentsmiðjustjóra í Rvk, síðar kona Einars Olgeirssonar fyrrv. alþingismanns; Þórunn Sigurðardóttir, síðar eiginkona Guðmundar Vestmanns; Theodóra Gísladóttir, gullsmiðs Lárussonar í Stakkagerði. Hún lézt 1920; Guðrún Frederiksen, fyrri kona Brynjólfs Sigfússonar, organista og söngstjóra (sjá Blik 1967); Kristín Gísladóttir frá Stakkagerði, síðar eiginkona Bjarna Sighvatssonar, bankastjóra; og Margrét Sveinsdóttir frá Reykjavík.
– Blómarósir þessar voru á göngu í Herjólfsdal, þegar myndin var tekin.