Blik 1947/Spaug 2

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1947


SPAUG


Kaup kaups.
Mark Twain fór eitt sinn að fá lánaða bók hjá vini sínum, sem tjáði sig fúsan til þess að lána honum bókina, en hann yrði aðeins að lesa hana í sínu húsi, þar eð hann hefði þann sið að lána ekki bækur út úr bókasafni sínu.
Nokkrum dögum seinna óskaði sami vinur Mark Twain's að fá lánaða sláttuvél hjá honum.
„Það er alveg sjálfsagt, en þú verður bara að nota hana hér, þar eð ég lána hana aldrei út af lóðinni,“ svaraði Mark Twain.

—————————

Sagt er að Noel Coward hafi eitt sinn sent bréf til tuttugu manna í London, sem hljóðaði svo:
„Allt er komið upp, flýið á meðan hægt er,“
Allir þessir tuttugu fóru skyndilega burt úr borginni.

—————————

Abraham Lincoln hafði sagt nokkur vingjarnleg orð um óvini sína. Kona nokkur spurði þá:
„Hvers vegna talið þér vel um óvini yðar, þegar þér ættuð heldur að útrýma þeim?“
„Já, en kæra frú, útrými ég þeim ekki, þegar ég geri þá að vinum mínum?“

—————————


Hermaður frá Aþenu var haltur á öðrum fæti og hlógu félagar hans í hersveitinni að honum.
„Ég er hér til að berjast, en ekki til þess að hlaupa,“ svaraði hann.

—————————


Jón við mjög grannan mann: “Þú ert eins og mjór nagli, sem vantar á bæði oddinn og hausinn.“

—————————

Monsúnar eru vindar, sem blása úr öllum áttum.

—————————

Úr stíl í stílinn: Úr beinunum fáum við lýsi og beinamjöl en mikinn grút úr lifrinni.

—————————

Til umhugsunar: Viljirðu komast hjá aðfinnslum, þá segðu ekkert, gjörðu ekkert og vertu ekkert. Samt ertu eitthvað. Hvað?




Við þökkum öllum, sem gefið hafa ársritinu greinar eða skýrslur til birtingar. Einnig þökkum við þeim, sem auglýsa í blaðinu og veita okkur þannig fjárhagslegan stuðning. Ólafur Gränz, teiknikennari skólans, teiknaði myndina á kápu og kunnum við honum beztu þakkir fyrir.

Útgáfustjórnin.