Bjarni Bjarnason (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Bjarni Bjarnason.

Bjarni Bjarnason frá Efri-Ey í Meðallandi, V.-Skaft., kennari fæddist þar 24. janúar 1900 og lést 25. maí 1961 í Rvk.
Foreldrar hans voru Bjarni Markússon bóndi, f. 29. júní 1870, d. 31. mars 1909, og síðari kona hans Vilborg Bjarnadóttir húsfreyja, f. 23. október 1872 á Undirhrauni í Meðallandi, d. 8. janúar 1944.

Bjarni var hjá foreldrum sínum í Efri-Ey til 1919, en lærði í Unglingaskólanum í Vík í Mýrdal 1914-1916, var hjá bróður sínum í Efri-Ey 1919-1920, fór þá til Eyja, var nemandi í Rvk, lauk kennaraprófi 1922. Hann átti námsdvöl í Danmörku 1925.
Bjarni kenndi í Leiðvallaskólahreppi í V.-Skaft. 1916-1917, og 1918-1920, kenndi í Barnaskólanum í Eyjum 1922-1929, var stundakennari í Austubæjarskóla í Rvk frá 1930.
Þau Elísabet giftu sig 1926, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Sólheimatungu við Brekastíg 14 1927.

I. Kona Bjarna, (28. ágúst 1926), var Elísabet Helgadóttir úr Reykjavík, húsfreyja, handavinnukennari, f. 26. nóvember 1898, d. 1. nóvember 1982. Foreldrar hennar voru Helgi Runólfsson steinsmiður, f. 27. nóvember 1865, d. 23. ágúst 1917, og kona hans Ástríður Erlendsdóttir húsfreyja, f. 13. júní 1858, d. 23. desember 1927.
Börn þeirra:
1. Helgi Bjarnason prentari í Rvk, f. 11. júní 1927, d. 29. mars 2000.
2. Ásta Bjarnadóttir verslunarmaður, sjúkraliði, f. 7. júní 1930, d. 12. febrúar 2012.
3. Sverrir Bjarnason, f. 4. mars 1939.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Manntöl.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.