Björg Atladóttir (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Björg Atladóttir.

Björg Atladóttir kennari fæddist 17. mars 1942 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Atli Már Árnason listmálari, f. 17. janúar 1918, d. 9. febrúar 2006, og kona hans Ólafía Kristín Gísladóttir húsfreyja, f. 29. ágúst 1920, d. 23. október 2008.

Björk lauk landsprófi í Gagnfræðaskólanum í Vonarstræti 1958, varð stúdent í M.R. 1963, lauk prófum í lífeindafræði í Tækniskóla Íslands 1970, lauk prófi í Myndlista- og handíðaskólanum 1982, og sótti fjölda námskeiða, flest í myndlist.
Björg kenndi í Barna- og unglingaskóla á Digranesi, Strand. 1963-1964, í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1964-1969, í Myndlistarskólanum í Rvk frá 1982.
Hún var stundakennari í Hjúkrunarskóla Íslands 1975-1976, var lífeindafræðingur á Landspítalanum 1969-1976, á rannsóknastofu dr. Ólafs Jenssonar 1977-1978, á Sólvangi í Hafnarfirði sumarið 1977.
Þau Hilmar Pétur giftu sig 1959, eignuðust tvö börn.
Hilmar Pétur lést 2019.

I. Maður Bjargar, (12. september 1959), var Hilmar Pétur Þormóðsson kennari, f. 19. mars 1942, d. 10. maí 2019.
Börn þeirra:
1. Atli Örn Hilmarsson, f. 20. janúar 1960.
2. Steinþór Óli Hilmarsson rafvirki, f. 28. apríl 1962. Kona hans Hjördís Hrönn Backmann.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.