Birna Kristín Kristjánsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Birna Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja, verkakona fæddist 6. febrúar 1942 á Fögrubrekku og lést 22. mars 2022.
Foreldrar hennar voru Kristján Björnsson frá Kirkjulandi, verkstjóri, útgerðarmaður, lagerstjóri, f. 4. nóvember 1916, d. 27. ágúst 1979, og kona hans Petrónella Sigríður Ársælsdóttir frá Fögrubrekku, húsfreyja, f. 26. maí 1921, d. 30. október 2006.

Börn Petrónellu og Kristjáns:
1. Laufey Kristjánsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 11. nóvember 1939 á Fögrubrekku. Fyrrum maður hennar Sigurður Þórarinsson. Maður hennar Birgir Hannesson.
2. Birna Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 6. febrúar 1942 á Fögrubrekku, d. 22. mars 2022. Maður hennar Jón Hannesson.
3. Kristján Sigurður Kristjánsson sjómaður, skipstjóri, innheimtumaður í Hvalfjarðargöngum, f. 16. október 1947 á Helgafellsbraut 1. Kona hans Sigríður Árnadóttir.
4. Ásta Gunna Kristjánsdóttir húsfreyja, bókari í Reykjavík, f. 30. júlí 1958 á Sj. Maður hennar Steinar Steinarsson.

Birna Kristín eignaðst barn með Hallvarði Birni 1965.
Þau Jón giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Akranesi, í Grindavík og Rvk.

I. Barnsfaðir Birnu Kristínar er Hallvarður Björn Hermannsson, f. 29. júlí 1943, d. 13. apríl 2015.
Barn þeirra:
1. Ella Kristín Björnsdóttir, f. 24. janúar 1965.

II. Maður Birnu Kristínar er Jón Kristján Hannesson vörubílstjóri, f. 10. nóvember 1947. Foreldrar hans Hannes Frímann Jónasson, f. 24. júlí 1902, d. 12. júlí 1966, og Ástríður Torfadóttir, f. 18. ágúst 1905, d. 6. júlí 1996.
Börn þeirra:
2. Ástríður Hanna Jónsdóttir, f. 12. aríl 1969.
3. Ágúst Bjarki Jónsson, f. 4. febrúar 1972.
4. Heiða Björk Jónsdóttir, f. 18. júní 1973.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.