Auður Anna Konráðsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Auður Anna Konráðsdóttir.

Auður Anna Konráðsdóttir húsfreyja, ráðskona fæddist 28. desember 1940 í Lambhaga við Vesturveg 19 og lést 11. júlí 2019.
Foreldrar hennar voru Sigmundur Karlsson sjómaður, vélstjóri, slippstjóri, f. 23. september 1912 á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, d. 13. apríl 1994, og kona hans Klara Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 8. júlí 1917 á Heiðarbrún við Vestmannabraut 59, d. 23. janúar 1993.
Kjörforeldrar Auðar Önnu voru Konráð Guðmundsson verkstjóri í Kópavogi, f. 12. febrúar 1915 í Flekkuvík á Vatnsleysuströnd, d. 19. júní 2007, og Laufey Sigríður Karlsdóttir föðursystir Auðar Önnu, f. 15. ágúst 1919 á Gamla-Hrauni, d. 19. október 2020.

Börn Klöru og Sigmundar:
1. Elín Kristín Sigmundsdóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 28. febrúar 1936 á Breiðabólstað, d. 30. desember 2000.
2. Guðmundur Karl Sigmundsson, f. 3. febrúar 1937 á Hásteinsvegi 10, d. 31. maí 1937.
3. Karl Sesar Sigmundsson skósmiður, f. 6. febrúar 1938 á Hásteinsvegi 9.
4. Jóhanna Ester Sigmundsdóttir húsfreyja, f. 3. september 1939 á Hásteinsvegi 9.
5. Auður Anna Konráðsdóttir, f. 28. desember 1940 á Vesturvegi 19, (Lambhaga). Hún varð kjörbarn Konráðs Guðmundssonar, f. 12. febrúar 1915 og Laufeyjar Sigríðar Karlsdóttur föðursystur sinnar, f. 15. ágúst 1919, d. 19. október 2020.
6. Ólafur Már Sigmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 11. mars 1942 á Hásteinsvegi 17, d. 11. apríl 2023.
7. Svavar Sigmundsson húsasmíðameistari, kaupmaður, f. 16. nóvember 1944 í Stafnesi.
8. Heimir Konráðsson rafvirki, f. 26. mars 1946 í Stafnesi. Hann varð kjörbarn Konráðs Guðmundssonar, f. 12. febrúar 1915 og Laufeyjar Sigríðar Karlsdóttur föðursystur sinnar, f. 15. ágúst 1919, d. 19. október 2020.
9. Hörður Ársæll Sigmundsson tónlistarmaður, f. 31. desember 1947 í Nikhól, (Hásteinsvegi 38), d. 22. apríl 1966.
10. Kristján Sigmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 20. apríl 1951 í Nikhól.
11. Laufey Sigríður Sigmundsdóttir húsfreyja á Spáni, f. 25. janúar 1956 í Nikhól.

Auður Anna var með kjörforeldrum sínum í æsku.
Hún var húsfreyja, síðar ráðskona í Þorlákshöfn. Hún bjó síðast við Garðatorg 2A í Garðabæ.
Þau Guðjón giftu sig, eignuðust þrjú börn, en skildu.
Þau Sigurður giftu sig, eignuðust tvö börn og Klara varð kjörbarn hans.

I. Maður Auðar Önnu, (skildu 1968), var Guðjón Már Jónsson bifreiðastjóri, vinnuvélastjóri, f. 19. maí 1936 í Rvk, d. 10. desember 2021.
Börn þeirra:
1. Laufey Konný Guðjónsdóttir, f. 16. nóvember 1960.
2. Kristín Jóna Guðjónsdóttir, f. 1. apríl 1963.

II. Maður Auðar Önnu var Sigurður Andrés Stefánsson verkstjóri, síðast í Gautavík 5 í Rvk, f. 11. desember 1944 í Rvk, d. 25. september 2015.

3. Klara Hrönn Sigurðardóttir, kjörbarn Sigurðar, f. 4. október 1970.
4. Konráð Sigurðsson, f. 17. apríl 1972.
5. Elvar Aron Sigurðsson, f. 7. júní 1978.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.