Arnþór Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Arnþór Sigurðsson, sjómaður, matsveinn fæddist 12. desember 1949 á Brekku við Faxastíg 4.
Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson frá Engey við Faxastíg 23, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 9. júlí 1919 á Sperðli í Landeyjum, d. 23. september 2003 í Eyjum, og kona hans Kristborg Jónsdóttir frá Meðalfelli í Nesjum, A.-Skaft., f. 4. maí 1919, d. 7. desember 2002 í Eyjum.

Börn Kristborgar og Sigurðar:
1. Drengur, f. 1944, d.1944.
2. Ægir Sigurðsson sjómaður, matsveinn, f. 10. ágúst 1945, d. 20. september 2015. Kona hans Jenný Ásgeirsdóttir.
3. Arnþór Sigurðsson sjómaður, matsveinn til sjós og á Brennubæ við Reykholt í Borgarfirði. Hann býr í Ölfusi, f. 12. desember 1949 á Brekku. Fyrrum kona hans Þóra Sigurðardóttir. Fyrrum sambýliskona hans Sigríður Kjartansdóttir, látin.
4. Guðlaug Björk Sigurðardóttir húsfreyja, vinnur í eldhúsi Víkurskóla í Vík í Mýrdal, f. 4. apríl 1952 á Brekku. Maður hennar Kristinn Ágústsson.
5. Jón Viðar Sigurðsson, f. 27. mars 1959, d. 8. september 1967.

Arnþór var með foreldrum sínum.
Hann lærði matseld og var matsveinn til sjós og á Brennubæ í Reykholti í Borgarfirði, bjó síðar í Ölfusi.
Þau Þóra giftu sig, eignuðust tvö börn, en skildu.
Þau Sigríður hófu sambúð, en skildu.

I. Kona Arnþórs, (1. desember 1973, skildu), er Þóra Sigurðardóttir, húsfreyja, bókari, f. 14. júlí 1954. Foreldrar hennar Sigurður Ólafsson, frá Varmá í Mosfellssveit, stöðvarstjóri Pósts og síma í Borgarnesi, f. 13. janúar 1926, d. 4. ágúst 2021, og Guðbjörg Þorleifsdóttir, frá Neskaupstað, f. 1. desember 1924, d. 12. september 2021.
Börn þeirra:
1. Jón Viðar Arnþórsson, f. 28. ágúst 1983.
2. Ingibjörg Helga Arnþórsdóttir, f. 18. ágúst 1988.

II. Sambúðarkona Arnþórs til 2013 var Sigríður Kjartansdóttir, f. 5. júní 1950 í Bolungarvík, d. 9. desember 2015.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.