Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigríður Johnsen (d.1930), kona Jóhanns J. Johnsen

Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen fæddist 4. júní 1855 og lést 30. ágúst 1930. Hún var dóttir hjónanna Árna Þórarinssonar og Steinunnar Oddsdóttur. Anna var snemma talin góður kvenkostur og hálfþrítug varð hún heitmey Jóhanns J. Johnsen á Vilborgarstöðum, sonar Guðfinnu Jónsdóttur Austmann húsfreyju.

Jóhann og Anna Sigríður hófu búskap sinn árið 1880 í gamla Frydendal. Synir þeirra voru: Gísli J. Johnsen, Kristinn Lárus Johnsen, Sigfús M. Johnsen, Guðni Hjörtur Johnsen og Árni Hálfdán Johnsen.

Í Frydendal ráku hjónin veitingasölu, útgerð og búskap.

Eftir lát Jóhanns bjó Anna Sigríður með Sigurði Sigurðssyni formanni, f. á Búðarhóls-Austurhjálegu í A-Landeyjum 1. apríl 1869, drukknaði 10. janúar 1912.
Barn þeirra var Jóhann Jörgen Sigurðsson, f. 1894. Hann fluttist til Vesturheims 1919.


Heimildir