Anna Jónsdóttir (hjúkrunarfræðingur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Anna Jónsdóttir.

Anna Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, húsfreyja fæddist 10. maí 1968 í Eyjum og lést 25. mars 2008.
Foreldrar hennar Jón Sigurður Óskarsson lögfræðingur, fulltrúi, f. 15. maí 1936, d. 29. september 2006, og síðari kona hans Hrefna Sighvatsdóttir frá Ási, húsfreyja, verslunarmaður, f. 23. júlí 1939.

Anna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún lærði hjúkrunarfræði, lauk námi 2000.
Anna var m.a. skólahjúkrunarfræðingur í Eyjum.
Hún eignaðist barn með Snorra 1989.
Þau Karl giftu sig 2002, eignuðust eitt barn.
Anna lést 2008.

I. Barnsfaðir Önnu er Snorri Jónsson, f. 16. júní 1965.
Barn þeirra:
1. Katla Snorradóttir, f. 18. febrúar 1989.

II. Maður Önnu, (26. janúar 2002), er Karl Björnsson læknir, f. 30. september 1962.
Barn þeirra:
1. Elfa Karlsdóttir starfsmaður í leikskóla og lyfjaverslun, f. 24. júlí 2002.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.