Þorvarður Ingi Vilhjálmsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þorvarður Ingi Vilhjálmsson.

Þorvarður Ingi Vilhjálmsson frá Grund á Dalatanga í Mjóafirði, rennismiður fæddist þar 26. maí 1939 og lést 1. júlí 2021 á Dvalarheimilinu Ljósheimum á Selfossi.
Foreldrar hans voru Vilhjálmur Svanberg Helgason, vitavörður, f. 26. september 1888, d. 28. maí 1971, og Jóhanna Sveinsdóttir húsfreyja, f. 24. janúar 1897, d. 14. október 1971.

Þorvarður lauk sveinsprófi í rennismíði í maí 1967.
Hann vann í Meitlinum, í Búrfellsvirkjun, hjá Skipalyftunni í Eyjum.
Þau Þórhildur giftu sig 1967, eignuðust fimm börn, og hún átti eitt barn áður. Þau bjuggu í Keflavík, Hveragerði, í Þorlákshöfn, við Sólhlíð 6 í Eyjum, þá í Svíþjóð og að lokum á Selfossi.
Þorvarður lést 2021 og Þórhildur 2023.

I. Kona Þorvarðar, (8. janúar 1967), var Þórhildur Ingibjörg Gunnarsdóttir, húsfreyja, þroskaþjálfi, f. 30. desember 1941 á Eskifirði, d. 9. janúar 2023 á Selfossi.
Börn þeirra:
1. Ingibjörg Hrönn Þorvarðardóttir, f. 5. maí 1967.
2. Gunnhildur Lilja Þorvarðardóttir, f. 19. maí 1970. Maður hennar Kristján Sæmundsson.
3. Jóhanna Kristín Þorvarðardóttir, f. 2. desember 1973. Maður hennar Steinar Kristján Óskarsson Ketilssonar.
4. Vilhjálmur Svanberg Þorvarðarson, f. 5. maí 1975. Kona hans Marnie Ramirez Nesnia.
5. Kristbjörg Þorvarðardóttir, f. 18. maí 1978. Maður hennar Eiríkur Björnsson.
Barn Þórhildar áður:
6. Gunnar Kristinn Víkingur Óskarsson, f. 30. mars 1959. Kona hans Sigrún Björg Víkingur Grímsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.