Þorvaldur Jónsson (Jómsborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þorvaldur Jónsson sjómaður frá Jómsborg fæddist 7. júlí 1884 í Efri-Holtum u. Eyjafjöllum og drukknaði 22. júní 1903.
Foreldrar hans voru Jón Sighvatsson bóndi, söðlasmiður, sjómaður við Sandinn, bóksali, útvegsmaður og bókavörður í Eyjum, f. 4. júlí 1856, d. 5. desember 1932, og kona hans Karólína Kristín Oddsdóttir húsfreyja, f. 21. október 1856, d. 12. september 1936.

Börn Karólínu Kristínar og Jóns voru:
1. Þorsteinn Johnson bóksali, f. 19. júlí 1883, d. 16. júní 1959.
2. Þorvaldur Jónsson, f. 7. júlí 1884, drukknaði 22. júní 1903.
3. Oddur Jónsson, f. 17. júlí 1885, d. að líkum Vestanhafs.
4. Sæmundur Jónsson útgerðarmaður, f. 2. apríl 1888, d. 31. mars 1968.
5. Kristín Jónsdóttir húsfreyja í Garðhúsum, f. 7. ágúst 1890, d. 21. nóvember 1968.
6. Jónína Jónsdóttir húsfreyja á Hlíðarenda, f. 11. júlí 1892, síðast í Hafnarfirði, d. 21. mars 1976.

Þorvaldur var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Eyja 1898.
Hann hóf sjómennsku, en tók út af drekkhlöðnum bát við Klettsnef 22. júní 1903.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.