Þorsteinn Guðmundsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þorsteinn Guðmundsson bóndi á Vilborgarstöðum fæddist 1778 og lést 5. mars 1834.

Þorsteinn var 23 ára vinnumaður hjá Árna Hreiðarssyni á Kirkjubæ 1801. Hann var á Vilborgarstöðum 1816.

I. Kona hans, (17. nóvember 1808), var Emerentíana Sæmundsdóttir húsfreyja, f. 1763, d. 11. júní 1836. Hann var 30 ára, en hún 45 ára. Þorsteinn var síðari maður hennar. Fyrri maður hennar var Jón Nikulásson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1753, d. 19. mars 1808.
Þau Emerentíana voru barnlaus.
Þorsteinn drukknaði í Þurfalingsslysinu, 58 ára.

II. Barnsmóðir Þorsteins var líklega Guðríður Árnadóttir á Kirkjubæ, f. 1775 og lést eftir barnsburð 4. september 1800, 25 ára.
Barn þeirra var
1. Guðmundur Þorsteinsson, f. 30. ágúst 1800 á Kirkjubæ, d. 4. september 1800 úr ginklofa.

III. Barnsmóðir Þorsteins var Sigríður Oddsdóttir, þá vinnukona í Stakkagerði, f. 1778, d. 24. desember 1826.
Barnið var
1. Rannveig Þorsteinsdóttir, f. 29. september 1809, d. 30. september 1809 úr „venjulegum barnaveikindum“, mun vera ginklofi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.