Þórunn Jónsdóttir (Enda)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórunn Jónsdóttir frá Enda, (Vesturvegi 34), saumakona í Eyjum, f. 23. maí 1920, d. 27. júlí 2002.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi, bátsformaður og trésmiður, f. 19. október 1885, d. 8. desember 1955, og kona hans Þorbjörg Sveinbjarnardóttir húsfreyja, f. 10. apríl 1885, d. 24. júlí 1962.

Börn Jóns og Þorbjargar voru:
1. Guðrún Jónsdóttir, f. 21. febrúar 1916, d. 12. júlí 1930.
2. Sveinn Jónsson vélstjóri, forstjóri í Reykjavík, f. 8. febrúar 1917, d. 3. apríl 1999. Kona hans var Ester Lovísa Sigbjörnsdóttir húsfreyja, f. 6. maí 1924.
3. Jón Jónsson flugstjóri, f. 23. janúar 1918, d. 14. apríl 1963. Kona hans var Hjálmfríður Hallgrímsdóttir húsfreyja, f. 10. maí 1927.
4. Vémundur Jónsson netagerðarmaður, vélstjóri í Eyjum, f. 23. maí 1920, d. 11. mars 1984. Kona hans var Guðný Sigurleif Stefánsdóttir húsfreyja.
5. Þórunn Jónsdóttir saumakona í Eyjum, f. 23. maí 1920, d. 27. júlí 2002.
6. Hjálmar Jónsson skipstjóri í Eyjum, f. 26. júní 1921, d. 16. febrúar 1978.

Þórunn var með foreldrum sínum á Hlíðarenda í Ölfusi til 1930. Hún fluttist með þeim og systkinum sínum til Eyja 1930.
Þau bjuggu á Brekku, (Faxastíg 4) í lok árs 1930, á Skildingavegi 8 1934, síðan á Vesturvegi 34, (Enda).
Foreldrar Þórunnar byggði Vesturveg 34, en húsið fékk nafnið Endi. Þar bjó hún, hélt heimili með móður sinni og Hjálmari bróður sínum. Hún fluttist síðar í Hraunbúðir.
Þórunn, sem hafði gælunafnið Tóta á Enda, vann að saumum starfsævi sína.
Hún var ógift og barnlaus.
Þórunn lést 2002.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ölfusingar - búendatal Ölfushrepps 1703-1980. Eiríkur Einarsson. Reykjavík. Sögusteinn 1985.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.