Þórunn Einarsdóttir (Uppsölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórunn Soffía Einarsdóttir húsfreyja í Uppsölum fæddist 17. apríl 1898 og lést 20. nóvember 1970.
Foreldrar hennar voru Einar Friðsteinn Jóhannesson frá Sveinungavík á Melrakkanesi í N-Þing., bóndi í Nýjabæ í Bakkafirði og síðar í Viðvík, N-Múl., f. 10. desember 1868, og kona hans Margrét Albertsdóttir, f. 8. október 1878, d. 24. ágúst 1955.

Börn Margrétar og Einars:
1. Jóhann Júlíus Einarsson, f. 5. janúar 1896, d. 28. maí 1897.
2. Þórunn Soffía Einarsdóttir húsfreyja í Uppsölum, f. 17. apríl 1898, d. 20. nóvember 1970.
3. Jóhann Júlíus Einarsson sjómaður, útgerðarmaður á Siglufirði, f. 15. maí 1901, drukknaði 29. september 1941.
4. Albert Steinþór Einarsson sjómaður í Viðvík, N.-Múl., f. 12. september 1906, d. 7. desember 1926.
5. Kristján Jóhannes Einarsson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 8. maí 1916, d. 21. maí 2000.

Móðursystkini Þórunnar, sem voru um skeið í Eyjum voru:
1. Þorbjörg Albertsdóttir vinnukona í Stakkahlíð 1910, síðar húsfreyja í Höfnum á Reykjanesi, f. 9. október 1890, d. 14. ágúst 1968.
2. Steinþór Albertsson, sem bjó fyrir ofan Hraun 1920, síðar verkamaður í Reykjavík, f. 18. janúar 1885, d. 13. apríl 1955.

Þórunn var með foreldrum sínum í Nýjabæ 1901 og í Viðvík 1910.
Hún var hjú á Lágafelli hjá Brynjúlfi Sigfússyni og Guðrúnu Sigurlaugu Þorgrímsdóttur 1920, húsfreyja í Uppsölum 1930 og síðan.

Maður Þórunnar var Finnur Jósef Sigmundsson bifreiðastjóri og verkamaður í Uppsölum, f. 29. janúar 1889, d. 25. ágúst 1966.
Börn þeirra:
1. Flosi Finnsson skipasmíðameistari, f. 2. júní 1922, d. 4. apríl 1986.
2. Sigmundur Ragnar Finnsson, sjómaður, síðar iðnrekandi í Melbourne í Ástralíu, f. 19. júlí 1923, d. 28. maí 1977. Kona hans var Cynthia Margreth Finnsson, f. 1928. Sonur þeirra Finnur William, f. 15. maí 1959.
3. Steina Margrét Finnsdóttir húsfreyja, f. 10. júní 1926. Maður hennar er Friðrik Haraldsson bakarameistari frá Sandi.
Fóstursonur Finns og Þórunnar er
4. Jón Bergmann Júlíusson trémíðameistari í Keflavík, f. 5. september 1939. Hann er bróðursonur Þórunnar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.