Þórhildur Jónasdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórhildur Jónasdóttir húsfreyja fæddist 9. febrúar 1945.
Foreldrar hennar voru Jónas Hjörleifsson frá Skarðshlíð, bóndi að Rauðafelli í A-Eyjafjallahreppi, Rang., f. 2. janúar 1909, d. 30. september 1991, og kona hans Ragnhildur Guðjónsdóttir frá Rauðafelli, húsfreyja, f. 1. júní 1912, d. 23. nóvember 1996.

Þau Ólafur Már giftu sig 1963, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Litla-Hvammi við Sólhlíð 4 1972.
Ólafur Már lést 2023.
Þórhildur býr í Kópavogi.

I. Maður Þórhildar, (17. maí 1963), var Ólafur Már Sigmundsson sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, trillukarl, f. 11. mars 1942, d. 11. apríl 2023.
Börn þeirra:
1. Stefán Ólafsson, f. 31. janúar 1964. Kona hans Helena Árnadóttir.
2. Hörður Ársæll Ólafsson, f. 27. janúar 1969. Sambúðarkona hans Þuríður Henrýsdóttir. Barnsmóðir hans Lára Jóhannesdóttir.
3. Ragnhildur Ólafsdóttir, f. 7. ágúst 1973. Barnsfaðir hennar Ragnar Waage Pálmason. Maður hennar Jóhannes Jóhannesson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.