Þóra Guðnadóttir (niðursetningur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Guðnadóttir fæddist 1774 og lést 26. desember 1797 úr köldu.
Hún fermdist 18 ára og ekki ólíklegt að hún hafi verið minnimáttar.
Þóra var niðursetningur við andlát, en heimili var ekki skráð.
(Dánar- og giftingaskrár fyrst haldnar í Eyjum 1785, fæðingaskrár 1786).
Ekki er ólíklegt, að foreldrar Þóru hafi verið Guðrún Lafranzdóttir húsfreyja, f. 1746, d. 4. mars 1816, og maður hennar Guðni Sveinsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1724, d. 28. ágúst 1792.
Systur hennar hafa líklega verið:
1. Margrét Guðnadóttir húsfreyja á Oddsstöðum, f. 1767, d. 20. febrúar 1841.
2. Guðrún Guðnadóttir, f. 1773, d. 23. mars 1804.
3. Sesselja Guðnadóttir, f. 1779, d. 16. september 1808.
4. Ingibjörg Guðnadóttir, d. 1. margs 1785 úr ginklofa, lifði 6 daga.
Þá hefur hálfsystir þeirra verið
5. Kristín Guðnadóttir húsfreyja í Skálakoti u. Eyjafjöllum 1801, f. 1766.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.