Óskar Freyr Brynjarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Óskar Freyr Brynjarsson.

Óskar Freyr Brynjarsson rafvirki fæddist 18. desember 1961 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Brynjar Karla Stefánsson vélsmiður, vélstjóri, kaupmaður, f. 2. ágúst 1939 á Akureyri, d. 20. apríl 2021, og Þórunn Ester Óskarsdóttir, f. 1. september 1941 í Árdal við Hilmisgötu 5, d. 29. október 2008.

Börn Esterar og Brynjars:
1. Óskar Freyr Brynjarsson rafvirki, f. 18. desember 1961. Kona hans Ólafía Birgisdóttir.
2. Dóra Kristrún Brynjarsdóttir geislafræðingur, f. 5. október 1966. Maður hennar Magnús Matthíasson.

Óskar lærði rafvirkjun í Iðnskólanum í Eyjum, lauk sveinsprófi 1982. Meistarar voru Jónas Kristinn Bergsteinsson og Birgir Jóhannsson. Óskar fékk meistararéttindi 1991.
Hann vann til sjós, hjá Skipalyftunni, hjá Geisla hf., hjá Hraðfrystistöðinni og Ísfélaginu, vinnur nú hjá Vinnslustöðinni.
Þau Ólafía giftu sig 1983, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu við Boðaslóð, þá við Fjólugötu 1, búa nú við Foldahraun 24

I. Kona Óskars, (10. desember 1983), er Ólafía Birgisdóttir húsfreyja, verslunarmaður, starfsmaður leikskóla, f. 26. janúar 1963 í Eyjum.
Börn þeirra:
1. Davíð Þór Óskarsson verkamaður, f. 21. september 1983. Kona hans Birna Vídó Þórsdóttir Sigurgeirssonar.
2. Ester Óskarsdóttir skrifstofumaður, f. 11. maí 1988. Maður hennar Magnús Stefánsson frá Fagraskógi, Eyjaf.
3. Brynjar Karl Óskarsson verkamaður hjá Hafnareyri, f. 4. janúar 1991. Fyrrum sambúðarkona Sandra Gísladóttir Magnússonar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ólafía.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.