Ólafur Líndal Bjarnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Birna Þorsteinsdóttir og Ólafur Líndal Bjarnason.

Ólafur Líndal Bjarnason, starfsmaður flugfélags, bóndi, kennari fæddist 4. ágúst 1952 í Skálakoti u. V.-Eyjafjöllum og lést 18. apríl 1998.
Foreldrar hans voru Bjarni Marinó Ólafsson bóndi í Skálakoti, f. 26. febrúar 1914, d. 23. janúar 1991, og kona hans Katrín Marta Magnúsdóttir húsfreyja, f. 22. október 1918, d. 5. desember 2001.

Ólafur lauk landsprófi í Skógaskóla 1969 og varð stúdent í Menntaskólanum í Hamrahlíð 1973.
Eftir stúdentspróf vann hann hjá Flugfélagi Íslands í Eyjum og hjá RARIK á Hvolsvelli. Hann bjó í fyrstu á Hvolsvelli, en frá 13. maí 1978 bjuggu Ólafur og Birna í Stóru-Hildisey í A.-Landeyjum. Ólafur var kennari við Grunnskóla Austur-Landeyja 1978-1984.
Þau Birna giftu sig 1974, eignuðust fjögur börn.
Ólafur Líndal lést 1998.

I. Kona Ólafs, (21. ágúst 1974), er Birna Þorsteinsdóttir frá Heiðbrekku á Rangárvöllum, húsfreyja f. 16. febrúar 1955.
Börn þeirra:
1. Freyr Ólafsson íþróttakennari, tölvunarfræðingur, ráðgjafi, f. 27. október 1974. Kona hans Kristjana Skúladóttir.
2. Örvar Ólafsson, íþróttakennari, ráðgjafi, f. 7. apríl 1978. Sambúðarkona Elísabet Halldórsdóttir.
3. Andri Ólafsson, tónlistarmaður, f. 1. október 1985. Kona hans Sigríður Ása Júlíusdóttir.
4. Bjarni Már Ólafsson, sjúkraþjálfari, f. 29. janúar 1991. Kona hans Elfa Ólafsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Morgunblaðið. Minning Ólafs.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.