Ólöf Bjarnadóttir (Breiðabliki)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólöf Bjarnadóttir frá Breiðabólsstað á Síðu, V.-Skaft., húsfreyja fæddist þar 18. nóvember 1895 og lést 11. júlí 1988 á öldrunardeild Landspítalans.
Foreldrar hennar voru Bjarni Jensson læknir, þá héraðslæknir í V.-Skaftafellssýslu, f. 9. janúar 1857 í Reykjavík, d. 5. september 1930 í Reykjavík, og kona hans Sigríður Jónsdóttir frá Stóru-Borg u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 26. apríl 1864, d. 20. maí 1940.

Ólöf var með foreldrum sínum á Breiðabólsstað til 1914, fór þá með þeim til Reykjavíkur og var hjá þeim 1914-1925.
Þau Jón giftu sig 1925, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Reykjavík, á Breiðabliki í Eyjum 1932-1937, í Stykkishólmi 1937-1940, síðan í Reykjavík.
Jón lést 1968 og Ólöf 1988.

Maður Ólafar, 5. desember 1925), var Jón Hallvarðsson lögfræðingur, fulltrúi, sýslumaður, hæstaréttarlögmaður f. 16. maí 1899, d. 13. apríl 1968.
Börn þeirra:
1. Baldur Jónsson kennari, f. 6. september 1926, d. 8. maí 2008.
2. Bjarni Bragi Jónsson hagfræðingur, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans, f. 18. júlí 1928, d. 1. júlí 2018. Kona hans Rósa Guðmundsdóttir.
3. Sigríður Jónsdóttir skrifstofumaður, bankaritari í Reykjavík, f. 14. maí 1931 á Kárastíg 11 í Reykjavík, d. 10. október 2007.
4. Svava Jónsdóttir myndlistarnemi, f. 25. apríl 1932, d. 1. júní 1952.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hver er maðurinn — Íslendingaævir. Brynleifur Tobíasson. Fagurskinna 1944.
  • Íslendingabók.
  • Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga 2000.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 22. júlí 1988. Minning.
  • Morgunblaðið 13. júlí 2018. Minning Bjarna Braga Jónssonar.
  • Prestþjónustubækur.
  • Tíminn 23. apríl 1968. Minning Jóns Hallvarðssonar.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.