Ásmundur Jónsson (Ási)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ásmundur Jónsson.

Ásmundur Jónsson frá Ási í Hegranesi í Skagafirði, rennismíðameistari fæddist þar 28. ágúst 1928 og lést 31. desember 2019 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Jón Sigurjónsson bóndi, f. 16. júní 1896 á Bessastöðum í Sæmundarhlíð í Skagafirði, d. 3. júlí 1974, og kona Lovísa Jónína Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 7. september 1904 í Ási, d. 19. febrúar 1988.

Ásmundur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði rennismíði í Magna og öðlaðist meistararéttindi.
Ásmundur vann í Magna og á Skipalyftunni mestan hluta starfsævi sinnar.
Þau Birgit giftu sig 1958, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu fjögur ár í Garði í Hegranesi í Skagafirði, þá í Þinghól, síðan á Strembugötu 27, fluttu til lands 1998, bjuggu síðast í Kópavogstúni 3 í Kópavogi.
Ásmundur lést 2019.

I. Kona Ásmundar, (21. ágúst 1958), er Martina Birgit Andersdóttir frá Þinghól, húsfreyja, bókari, f. 22. ágúst 1935.
Börn þeirra:
1. Jón Anders Ásmundsson eðlisfræðingur, MSc-próf í öreindafræði, kennari í Noregi, f. 7. apríl 1958 í Eyjum. Sambúðarkona hans Mette Korsmo.
2. Guðmundur Ólafur Ásmundsson kennari, skólastjóri í Kópavogi, f. 18. nóvember 1959 á Sauðárkróki. Kona hans Ingveldur Jónsdóttir.
3. Sólveig Margrét Ásmundsdóttir húsfreyja, matráðskona, f. 5. ágúst 1962 í Eyjum. Maður hennar Gísli Guðmundsson, látinn.
4. Lovísa Björg Ásmundsdóttir, með sveinspróf í fatasaumi, f. 14. júlí 1963 í Eyjum.
5. Bergur Martin Ásmundsson, með MA-próf í frönsku, er leiðsögumaður, f. 10. maí 1969 í Eyjum. Fyrrum sambúðarkona hans Bettina Seifert.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.