„Stafsnes“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(9 millibreytingar ekki sýndar frá 4 notendum)
Lína 1: Lína 1:
''Einnig er til samnefnt hús sem heitir eftir nesinu sem lýst er í þessari grein. Sjá [[Stafnsnes (hús)|Stafnsnes]].''
----
[[Mynd:DSCF4559 stafnsnes.jpg|thumb|300px|Stafnsnes]]
'''Stafnsnes''' er langt og mjótt nes sem gengur út frá [[Dalfjall]]i við [[Upsaberg]]. Það myndar lítinn fjörð með Dalfjalli, og í botni þess er '''Stafnsnesfjara'''.


Stafnsnes er einn fegursti staður á Heimaey og er útsýni þaðan til úteyjanna í suðri stórfenglegt. Á nesinu sjálfu er stysta vegalengd milli Heimaeyjar og [[Smáeyjar|Smáeyja]], rétt um 700 m í Hrauney. Þrátt fyrir stuttan spotta er ekki hægt um sund út í eynna sökum mikilla og harðra strauma við Hrauney. Í Stafnsnesfjöru er útsýnið fagurt til úteyjanna og má sjá [[Álsey]], [[Brandur]], [[Hellisey]], [[Geldungur|Geldung]] og [[Súlnasker]]. Fegurðin er ólýsanleg í þessu umhverfi og er fegurðin mest síðsumars, þegar kvölda tekur. Þá tekur kyrrðin og kvöldsólin völdin og framreiðir sitt fegursta samspil.
[[Mynd:Stafsnesfjara.jpg|thumb|300px|Stafnsnesfjara og úteyjar]]Ekki er Stafnsnes greiðfærasti staðurinn á Heimaey, en sérstaða Stafnsness er fyrirhafnarinnar virði. Það þarf að ganga úr Herjólfsdal upp á Dalfjall og þá tekur við brött ganga niður í Stafnsnes. Þeim mun erfiðari er gangan upp, því hlíðarnar eru nærri lóðréttar á tíðum.
Af dýralífi í Stafnsnesi er helst að nefna [[æðarfugl]]inn. Æðarfuglinn verpir upp  við klettaveggina í grýttri fjörunni og einnig á Stafnsnesi. Staðurinn hentar vel fyrir fuglinn þar sem að verður er almennt hagstætt og vindur hægur. Rannsóknarmenn hafa bent á að ef hefja skyldi dúntekju á Heimaey þá væri Stafnsnes ákjósanlegasti staðurinn. Af 50 hreiðrum á Heimaey sem að skoðuð voru í rannsókninni voru 23 þeirra í Stafnsnesi.
{{Heimildir|
* Hvað er „á bak við“ Herjólfsdal? ''Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 1959''.
* Dr. Ingvar Atli Sigurðsson og Cand. Sci. Páll Marvin Jónsson. ''Æðarvarp á Heimaey.'' Vestmannaeyjar: Rannsókna- og fræðasetur Vestmannaeyja, 2004.
}}
[[Flokkur:Örnefni]]

Núverandi breyting frá og með 14. mars 2021 kl. 23:45

Einnig er til samnefnt hús sem heitir eftir nesinu sem lýst er í þessari grein. Sjá Stafnsnes.


Stafnsnes

Stafnsnes er langt og mjótt nes sem gengur út frá Dalfjalli við Upsaberg. Það myndar lítinn fjörð með Dalfjalli, og í botni þess er Stafnsnesfjara.

Stafnsnes er einn fegursti staður á Heimaey og er útsýni þaðan til úteyjanna í suðri stórfenglegt. Á nesinu sjálfu er stysta vegalengd milli Heimaeyjar og Smáeyja, rétt um 700 m í Hrauney. Þrátt fyrir stuttan spotta er ekki hægt um sund út í eynna sökum mikilla og harðra strauma við Hrauney. Í Stafnsnesfjöru er útsýnið fagurt til úteyjanna og má sjá Álsey, Brandur, Hellisey, Geldung og Súlnasker. Fegurðin er ólýsanleg í þessu umhverfi og er fegurðin mest síðsumars, þegar kvölda tekur. Þá tekur kyrrðin og kvöldsólin völdin og framreiðir sitt fegursta samspil.

Stafnsnesfjara og úteyjar

Ekki er Stafnsnes greiðfærasti staðurinn á Heimaey, en sérstaða Stafnsness er fyrirhafnarinnar virði. Það þarf að ganga úr Herjólfsdal upp á Dalfjall og þá tekur við brött ganga niður í Stafnsnes. Þeim mun erfiðari er gangan upp, því hlíðarnar eru nærri lóðréttar á tíðum.


Af dýralífi í Stafnsnesi er helst að nefna æðarfuglinn. Æðarfuglinn verpir upp við klettaveggina í grýttri fjörunni og einnig á Stafnsnesi. Staðurinn hentar vel fyrir fuglinn þar sem að verður er almennt hagstætt og vindur hægur. Rannsóknarmenn hafa bent á að ef hefja skyldi dúntekju á Heimaey þá væri Stafnsnes ákjósanlegasti staðurinn. Af 50 hreiðrum á Heimaey sem að skoðuð voru í rannsókninni voru 23 þeirra í Stafnsnesi.


Heimildir

  • Hvað er „á bak við“ Herjólfsdal? Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 1959.
  • Dr. Ingvar Atli Sigurðsson og Cand. Sci. Páll Marvin Jónsson. Æðarvarp á Heimaey. Vestmannaeyjar: Rannsókna- og fræðasetur Vestmannaeyja, 2004.