Skuld

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2005 kl. 10:03 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2005 kl. 10:03 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Skuld stóð við Vestmannabraut 40. Húsið var rifið vegna skipulagsbreytinga og gatnagerðar árið 1971, en Stefán Björnsson og Sigurður Oddsson, báðir formenn, reistu húsið og gáfu því nafn. Nafnið tengist því að þeir félagar þóttust skulda peninga við byggingu hússins.