Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1989/Verðandi 50 ára

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. september 2015 kl. 10:56 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. september 2015 kl. 10:56 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big>'''Verðandi 50 ára'''</big></big> Hinn 27. nóvember s.l. haust voru 50 ár liðin frá stofnun skipstjóra og stýrimannafélagsins Verðanda í Vestmannaeyjum. Tildrö...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Verðandi 50 ára

Hinn 27. nóvember s.l. haust voru 50 ár liðin frá stofnun skipstjóra og stýrimannafélagsins Verðanda í Vestmannaeyjum. Tildrögin að stofnun félagsins voru það nauðsynjamál að reisa vita á Þrídröngum. Síðan varð þróunin sú að Verðandi varð stéttarfélag skipstjórnarmanna í Evjum en jafnan reiðubúið að eiga hlut að öðrum góðum málum, ekki hvað síst í björgunar- og öryggismálum sjómanna.
Þessara merkistímamóta var veglega minnst nú í haust með miklum ársfagnaði í Samkomuhúsinu og útgáfu á myndarlegu afmælisriti þar sem saga félagsins er m.a. ítarlega rakin í máli og myndum. Þá ákvað stjórn félagsins í tilefni af þessum tímamótum í félaginu að beita sér f'yrir því að reisa 30 m háan kross austur á nýja hrauninu til að þakka þá mddi að hér varð ekki manntjón í náttúruhamförunum 1973. Hefur þegar verið hafist handa um þessa framkvæmd og er þess getið annars staðar hér í blaðinu.
Núverandi stjórn Verðanda skipa þessir: Sveinn R. Valgeirsson, formaður; Jón Bondó Pálsson, varaf'ormaður: Richard Sighvatsson, gjaldkeri: Gísli Einarsson, gjalderi: Ægir 0. Ármannsson, ritari: Sigurjón Gunnlaugsson, ritari.
Sjómannadagsblaðið óskar þeim Verðandamönnum til hamingju með af'mælið, þakkar gott samstarf gegnum tíðma og árnar f'élaginu og félögum þess heilla í framtíðinni.