Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1987/Ljóð eftir Hilmi Högnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. janúar 2019 kl. 11:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. janúar 2019 kl. 11:40 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Hilmir Högnason


Flaggað á Tindastól


Hér er fáni furðu stór.
Forseta sé heiður.
Stundum verður vísir mjór.
vörpulegur meiður.


Víst er Vigdís ungri þjóð
vorsins morgunstjarna.
Hún er eins og helgiljóð
í huga landsins barna.