Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1974/ Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum 1972 og '73

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. maí 2019 kl. 13:55 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. maí 2019 kl. 13:55 eftir Valli (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

S j ómannadagurinn í Vestmannaeyjum 1972 og #73

VEÐUR var eins og það getur fegurst orðið á vordegi. Fjalla- og jöklasýn til landsins en Eyj-arnar skörtuðu grænum túnum og fjallatindum. Það var vika af júní. Daginn setti Guðjón Ár-mann Eyjólfsson og las m. a. Sjómannaminni eftir Sveinbjörn Á. Benónýsson. Á þessari fallegu morgunstund var mjög fjölmenn skrúðganga frá torginu við Samkomuhúsið og sem leið liggur vestur Vestmannabraut, upp Heiðaveg og til Landakirkju. Þar flutti sr. Þorsteinn Lúther Jóns-son ágæta og minnisstæða sjómannaræðu og börn sjómanna voru færð til skírnar. Við minn-isvarðann talaði Einar J. Gíslason frá Arnarhóli og mæltist þeim mikla mælskumanni og Vest-mannaeyingi vel að vanda. Magnús Jónsson óperusöngvari söng við athöfnina og síðan lagði kona á íslenzkum þjóðbúningi krans að minnis-varða drukknaðra og hrapaðra, og þeirra, sem farist hafa í flugslysum. Síðdegis var dagskrá á Stakkagerðistúninu; heldur hafði þykknað í lofti, en þó var gott veð-ur. Aðalræðu dagsins flutti þar Hilmar Rós-mundsson og mæltist skörulega. Um kvöldið voru fjölbreytt hátíðahöld í Sam¬

komuhúsi Vestmannaeyja og aflakóngur og fiskikóngur heiðraðir. Á Stakkagerðistúninu var sigurvegurum í íþróttum laugardagsins, kappróðri og koddaslag afhent verðlaun. Aldraðir sjómenn voru heiðr-aðir og veitt voru viðurkenningarskjöl fyrir björgun mannslífa. Heiðraðir fyrir björgun mannslífa voru: Guð-mundur Loftsson og Guðmundur Guðfinnsson fyrir björgun Benónýs heitins Friðrikssonar, sem féll í Vestmannaeyja 1. mars 1972.Stefán Runólfsson fyrir björgun barns, er féll í Vest-mannaeyjahöfn, og Bergvin Oddsson fyrir björg-un Rögnvalds Jóhannssonar, sem féll í Vest-mannaeyjahöfn 6. október 1971. Aldraðir sjómenn, sem voru heiðraðir, voru: Jón Hinriksson Skólavegi 45, Egill Árnason vél-stjóri og Björgvin Jónsson skipstjóri frá Úthlíð. Útiíþróttir höfðu verið eftir hádegi á laugar-deginum inni í Friðarhöfn og tókust þær ágæt-lega. Þar var kappróður, koddaslagur og björg-unaræfing. Skotið var Iínu frá Friðarhafnar-bryggju út í Lóðsinn, sem lá úti á Botninum og var maður dreginn frá skipinu og í land. For-maður björgunarsveitar Björgunarfélags Vest-mannaeyja, Kristinn Sigurðsson, stjórnaði æf-ingunni, sem þótti takast vel. í koddaslag kepptu Tómas Jónsson, Þröstur Hjörleifsson og Ingimundur Bernharðsson. Mjög góð þátttaka var í kappróðrinum og tóku fjórar skipshafnir þátt í róðrinum, skips-hafnir Hrauneyjar, Halkions, Gjafars og Gull-bergs. Skipstjórar bátanna stýrðu í kappróðrin-um, þeir Guðjón Kristinsson, Stefán Stefánsson, Rafn heitinn Kristjánsson og Guðjón Pálsson. Bestan tíma skipshafna hafði sveit Gullbergs, 1 mín. 43,3 sek. Frá fiskvinnslustöðvunum kepptu þrjár sveit-ir: sveit Vinnslustöðvar, Hraðfrystistöðvar og Fiskiðju. Bestan tíma hafði sveit Vinnslustöðv-ar 1 mín. 35,6 sek., stýrimaður var Jóhannes Sigmarsson. Frá öðrum landfyrirtækjum keppti sveit rafvirkja og náði tímanum 1 mín. 35,4 sek., stýrimaður Kristinn Sigurðsson. Fjórar kvenna-sveitir kepptu í tveim riðlum, sveit Isfélags, Fiskiðju og Vinnslustöðvar og Þórsstúlkur. Best-an tíma meðal kvennasveitanna hafði sveit Fisk-iðjunnar 1 mín. 53,4 sek., stýrimaður sveitar-innar var Björn Kristjánsson. Tvær unglinga-sveitir reru, mömmupeyjar og fermingardrengit austurbæjar. Mömmupeyjar unnu í tímanum 1.40,4. Tvær mjög skemmtilegar áhugamannasveitir ungra sjómanna kepptu, sveit Steinaldarmanna og sveit Sjóengla. Sveitir þessara rösku og líf-legu stráka sýndu sérstaklega skemmtilegan róð-ur og reru þær saman í riðli, Steinaldarmenn á Olafi og Sjóenglar á Hreyfli. Steinaldarmenn sigruðu á tímanum 1.32,6, stýrimaður sveitar-innar var Gústaf Ó. Guðmundsson. Sveit Sjó-engla, stýrimaður Sigurjón Sigurðsson, hafði tímann 1.33,9. Róðrartímar þessara tveggja sveita var besti tíminn hjá þeim 16 sveitum, sem tóku þátt í róðrinum. Steinaldarmenn hafa tekið þátt í róðri á sjómannadeginum í Vestmannaeyjum samfleytt í sex ár og hefur Gústaf Ó. Guðmundsson vél-stjóri alltaf verið stýrimaður sveitarinnar og fyr-irliði. Vann sveitin sinn fyrsta sigur í riðli unglinga á sjómannadeginum 1968. Er í sjó-mannadagsblaðinu 1969 mynd af þeim peyjum og er gaman að sjá þá breytingu, sem orðið hef-ur á körlum, en þeir eru flestir hinir sömu í dag. Þessir piltar héldu vel uppi merki Eyjanna á sjómannadeginum í Reykjavík í fyrra í Naut-hólsvík og höfðu bestan tíma róðrasveita þar, 2 mín. 26,3 sek. Þeir sigruðu í sínum riðli sveit Glímufélagsins Armanns, sem reri á 2.30,7. Á sjómannadeginum í Reykjavík er róin vega-lengd 500 metrar og er spurning hvort ekki ætti að lengja hér brautina, sem hefur verið 300 metr-ar. Með því fengist samanburður á róðrasveit-um annars staðar á landinu og væri skemmti-


legt, ef sama vegalengd væri um land allt í kappróðrinum. I Vestmannaeyjum hefur ekki verið svo góð kappróðrarsveit sem Steinaldar-menn eru, síðan hin ágæta róðrasveit vélstjóra var hér. En sveit vélstjóra tók þátt í landsmóti róðrasveita í Hafnarfirði árið 1955 og varð þar sigursælust. Stýrimaður sveitarinnar var Tryggvi Gunnarsson vélstjóri en ræðarar voru Jón Gunnarsson Horninu, Þorsteinn heitinn Gunnarsson (bræður stýrimannsins), Eggert Ol-afsson, Sveinn Valdimarsson, Ármann Böðvars-son og Guðfinnur Þorgeirsson.

Sjórnannadagurinn í Vestntannaeyjurn 1973: AF EÐLILEGUM orsökum voru ekki hátíðahöld í Vestmannaeyjum á sjómannadaginn vorið 1973. Eldgosið var þá enn í gangi, og aska og vikur lá yfir mikinn hluta bæjarins. Að tilhlutan Sjómannadagsráðs var vikur hreinsaður frá minnisvarða drukknaðra og hrap-aðra og var lagður blómsveigur að minnisvarð-anum. Einar J. Gíslason flutti ritningar- og minningarorð, síðan söng ung stúlka við undir-leik á gítar. Þetta var látlaus en tilkomumikil athöfn í góðu veðri. Um kvöldið héldu sjómenn frá Vestmanna-eyjum ágætan fagnað að Hótel Borg og voru þar aflakóngar heiðraðir og fram fór afhending Verðandaúrsins. Ómar Ragnarsson skemmti og stiginn var dans. Var þetta hinn besti fagnaður. Sjómannadagsráð Reykjavíkur sýndi sjómönn-um frá Eyjum mikla samstöðu og hluttekningu vegna hinna sérstöku aðstæðna, að Eyjaflotinn var dreifður um allar verstöðvar sunnanlands.

Piill Þorbjörnsson afhendir Sverri Gunnlaugssyni hæsta nemanda við lokapróf frá Stýrimannaskólan-itm i Vestmannaeyfum vorið 1972 VerSandaúrið og skjöld Einars Sigurðssonar,

Vikri og ösku rnokað frá minnisvarðanum á lóð Landakirkju, vorið 1975. Ljósm. Guðm. Sigfússon.


Sjómannadagsblaðið var helgað Vestmannaeyj-um og eldgosinu þar aö miklu leyti og á for-síðu þess var ægifögur litmynd af Landakirkju með eldsúluna í bakgrunni. Ræðumenn dagsins auk sjávarútvegsmálaráðherra, sem ávallt flytur ávarp á sjómannadeginum í Reykjavík, voru baðir frá Eyjum; Guðjón Ármann Eyjólfsson, skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyj-um, sem talaði fyrir hönd sjómanna og Björn Guðmundsson, formaður Utvegsbændafélags Vestmannaeyja, sem talaði fyrir hönd útgerðar-manna. Tvær sveitir frá Vestmannaeyjum tóku þátt í kappróðrinum, Steinaldarmenn og kvennasveit ísfélags Vestmannaeyja (við Kirkjusand). Það var fagurt veður í Reykjavík á sjómannadaginn 1973, og fjöldi Vestmannaeyinga var í Naut-hólsvík með fjölskyldur sínar þennan dag.


Minningarathöfn við minnisvarðann á lóð Landakirkju á sjómannadaginn 1972.


Skrúðganga Sjómannadagsins 1972 heldur vestur Vestmannabraut. Lúðrasveit Vestmannaeyja í broddi fylkingar, stjórnandinn Ellert Karlsson blæs trompet á miðri mynd.
Við minnisvarðann á Sjómannadeginum í Vestmannaeyjum 1973.



Steinaldarmenn. Hinir knáu ræðarar í sveitinni talið frá vinstri: Stefán Geir Gunnarsson, Georg Þór Kristjánsson, Ólafur Guðjónsson, Grétar Halldórsson, Guðmundur Rafn Gunnarsson, Jón Óli Jóhannesson.


Gústaf Ó. Guðmundsson stýrimaður „Steinaldarmanna“.