Sigurður Reimarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2006 kl. 07:59 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2006 kl. 07:59 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Siggi Reim.

Sigurður Reimarsson er fæddur í Vestmannaeyjum 2. júní 1928 og uppalinn þar. Móðir Sigurðar var úr Reykjavík og faðir hans, Reimar Hjartarson, úr Landeyjum en fjölskyldan bjó á Hásteinsvegi 34 og síðar í Heiðartúni sem Reimar byggði. Þar rak hann einnig rörsteypugerð. Sigurður bjó lengi í húsinu Stakagerði-Vestra, en það var rifið á tíunda áratugnum. Sigurður býr nú á Hraunbúðum.

Sigurður, eða Siggi Reim eins og Eyjamenn kalla hann, starfaði um hríð hjá Lifrarsamlaginu en lengst af starfaði hann hjá Vestmannaeyjabæ við sorphirðingu og síðar við hreinsun á götum bæjarins.

Siggi Reim var brennukóngur á Þjóðhátíðinni í rúmlega hálfa öld.