Sigurður Reimarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. ágúst 2006 kl. 16:13 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. ágúst 2006 kl. 16:13 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Siggi Reim.

Sigurður Reimarsson er fæddur í Vestmannaeyjum 2. júní 1928 og uppalinn þar. Móðir Sigurðs var úr Reykjavík og faðir hans úr Landeyjum en fjölskyldan bjó lengst af á Hásteinsvegi 34. Sigurður bjó lengi í húsinu Stakagerði-Vestra, en það var rifið á tíunda áratugnum. Sigurður býr nú á Hraunbúðum.

Sigurður, eða Siggi Reim eins og Eyjamenn kalla hann, starfaði um hríð hjá Liftarsamlaginu en lengst af starfaði hann hjá Vestmannaeyjabæ við sorphirðingu og síðar við hreinsun á götum bæjarins.

Siggi Reim var brennukóngur á Þjóðhátíðinni í rúmlega hálfa öld.