Sigurður Ó. Sigurjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2012 kl. 09:42 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2012 kl. 09:42 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sigurður Sigurjónsson


Sigurður í brúnni.

Sigurður Óli Sigurjónsson fæddist 24. janúar 1912 og lést 16. júní 1981. Foreldrar hans voru Sigurjón Sigurðsson fisksali og Kristín Óladóttir. Hann bjó á Þingeyri við Skólaveg 37 frá 1930 til 1954. Þá flutti hann í hús sitt sem hann hafði byggt á Boðaslóð 15.

Kona Sigurðar var Jóhanna Helgadóttir. Þau áttu tvær dætur: Kristínu og Þóru.

Sigurður var formaður með mótorbátinn Freyju.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Sigurð:

Freyju Siggi Sigurjóns
siglir hryggi Ránar,
þó að briggið báru lóns
bylgjur þiggi fránar.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Sigurður haf við hagur,
heppinn Sigurjóns greppur,
Freyju sá vart mun vægja,
víðir þó stag0nd hýði.
Siglir greitt rugg í rugli,
ryður þorsk-net í iðinn.
Hugmikill Baldur bauga
bundinn er veiði lunda.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.