Sigríður Bjarnadóttir (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. apríl 2013 kl. 21:39 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. apríl 2013 kl. 21:39 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigríður Bjarnadóttir''' húsfreyja í Kornhól fæddist 25. janúar 1814 á Miðhúsum og lést fyrir manntal 1860.<br> Foreldrar hennar voru [[Bjarni Björnsson...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja í Kornhól fæddist 25. janúar 1814 á Miðhúsum og lést fyrir manntal 1860.
Foreldrar hennar voru Bjarni Björnsson bóndi á Miðhúsum, f. 1752, d. 23. nóvember 1827 og kona hans Halldóra Pétursdóttir húsfreyja, f. 1774, d. 1. maí 1822.
Sigríður var með foreldrum sínum á Miðhúsum 1816, vinnukona á Oddsstöðum 1835, húsfreyja í Kornhól 1845 og 1850 og 1855, d. fyrir manntal 1860.

Maður Sigríðar var Helgi Jónsson bóndi og formaður í Kornhól, f. 9. júlí 1806 á Eystri-Klasbarði í V-Landeyjum og lést 17. júní 1864, drukknaði.

Börn þeirra Sigríðar:
1. Helga Helgadóttir, f. 12. apríl 1836, d. 29. desember 1914, húsfreyja í Steinmóðshúsi 1870, vinnukona í Nýjabæ 1901 og er þar 1910. Hún er sögð dóttir þeirra 1845, en dóttir hans 1850. Þannig er hún einnig skráð 1855.
2. Bjarni Helgason, f. 1844. Hann var með foreldrum sínum 1845, 1850 og 1855. Hann er með ekklinum föður sínum 1860, síðar vinnumaður á Ofanleiti, d. 1869. Hann var í drengjaflokki Herfylkingarinnar
3. Árni Helgason, f. 1848. Hann var flokksforingi í Herfylkingunni. Hann var með foreldrum sínum í Kornhól 1850, 1855, með ekklinum föður sínum þar 1860, ókvæntur vinnumaður í Stakkagerði 1870. Hann var húsmaður í Norðurgarði við brottför til Utah 1886.
4. Jónas Helgason, síðar bóndi í Nýjabæ, f. 26. september 1851, d. 15. apríl 1914.


Heimildir