Sigmund Jóhannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. september 2006 kl. 09:27 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. september 2006 kl. 09:27 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Leiðrétti texta)
Fara í flakk Fara í leit
Sigmund Jóhannsson.

Sigmund Jóhannsson Baldvinsen fæddist 22. apríl 1931 í Noregi og kom til Íslands þriggja ára gamall. Faðir Sigmund er íslenskur en móðir hans er norsk. Sigmund er kvæntur Helgu Ólafsdóttur. Þau eiga tvo syni, Ólaf Ragnar sem býr í Noregi og Hlyn lögregluþjón í Vestmannaeyjum. Áður átti Sigmund soninn Björn Braga, vélstjóra.

Sigmund er menntaður vélstjóri og fann hann meðal annars upp sjálfvirkar sleppibúnað gúmmíbjörgunarbáta.

Sigmund er einna þekktastur fyrir skopmyndir sínar í Morgunblaðinu. Fyrsta mynd hans í Morgunblaðinu birtist 25. febrúar 1964 og tengdist Surtsey og fyrstu landgöngu þar. Í Heimaeyjargosinu árið 1973 varð Sigmund fastráðinn við Morgunblaðið og hefur skopmyndateiknun verið aðalstarf hans frá þeim tíma. Sigmund hefur einnig myndskreytt bækur og hefur meðal annars unnið í samstarfi við Árna Johnsen.

Þann 15. desember 2004 keypti íslenska ríkið 10 þúsund teikningar eftir Sigmund og hyggst gera þær aðgengilegar fyrir almenning á Netinu.


Heimildir