Sigmund Jóhannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2006 kl. 14:02 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2006 kl. 14:02 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigmund Johanson Baldvinsen fæddist í Noregi og kom til Íslands þriggja ára gamall. Faðir Sigmund er íslenskur en móðir hans er norsk. Sigmund er kvæntur Helgu Ólafsdóttur. Þau eiga einn son, Hlyn lögregluþjón.

Sigmund er menntaður vélstjóri og fann hann meðal annars upp sjálfvirkar sleppibúnað gúmmíbjörgunarbáta.

Sigmund er einna þekktastur fyrir skopmyndir sínar í Morgunblaðinu. Fyrsta mynd hans í Morgunblaðinu birtist 25. febrúar 1964 og tengdist Surtsey og fyrstu landgöngu þar. Í Heimaeyjargosinu árið 1973 varð Sigmund fastráðinn við Morgunblaðið og hefur skopmyndateiknun verið aðalstarf hans frá þeim tíma. Sigmund hefur einnig myndskreytt bækur og hefur meðal annars unnið í samstarfi við Árna Johnsen.

Þann 15. desember 2004 keypti íslenska ríkið 10 þúsund teikningar eftir Sigmund og hyggst gera þær aðgengilegar fyrir almenning á Netinu.


Heimildir