„Saga Vestmannaeyja, endurútgáfa/ Mynd Sigfúsar M. Johnsen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: <center>300px|ctr</center> <big> ''Höfundur þessarar bókar, Sigfús M. Johnsen, fæddist í Vestmannaeyjum þann 28. mars 1886...)
 
m (Verndaði „Saga Vestmannaeyja, endurútgáfa/ Mynd Sigfúsar M. Johnsen“ [edit=sysop:move=sysop])
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 1. september 2011 kl. 20:33

ctr


Höfundur þessarar bókar, Sigfús M. Johnsen, fæddist í Vestmannaeyjum þann 28. mars 1886. Foreldrar hans voru Jóhann Jörgen kaupmaður og útvegsbóndi þar og Anna Sigríður Árnadóttir. Sigfús varð stúdent í Reykjavík 1907 og lauk síðan lögfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 1914 og var eftir það fulltrúi í Stjórnarráði Íslands og hæstaréttarritari. Hann var skipaður bæjarfógeti í Vestmannaeyjum árið 1940 og gegndi þeirri stöðu um níu ára skeið. Eftir það lagði hann m.a. stund á fræðirannsóknir í Kaupmannahöfn um þriggja ára skeið ásamt því að stunda ritstörf sem tóku stærstan hluta frítíma hans. Eftir Sigfús liggja fjölmargar greinar og rit tengd Vestmannaeyjum eins og sjá má í ritaskrá sem birtist hér til hliðar. Kona Sigfúsar var Jarþrúður, fædd 3. júní 1890, Pétursdóttir prests á Kálfafellsstað og k.h. Helgu Skúladóttur. Jarþrúður lést þann 9. október 1969. Sigfús lést þann 9. janúar 1974.



Saga Vestmannaeyja efnisyfirlit