Sölvatekja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 13:42 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 13:42 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Söl voru mikið nýtt til manneldis í Eyjum áður fyrri eins og raunar víða annars staðar á landinu. Best þykja þau söl sem ferkst rennandi vatn hefur náð að leika um, enda eru þau ekki jafn sölt og hin sem eingöngu sjór rennur um.

Í Vestmannaeyjum er einn sá staður, þar sem svo háttar til. Nefnist hann Sölvaflá og er norðan í Stórhöfða. Vatn drýpur úr slútandi berginu ofan við flána og „útvatnast“ því sölin á flánni.

Áður fyrri, þegar bújarðir í Vestmannaeyjum skiptu milli sín þeim hlunnindum sem var að hafa, fóru Ofanbyggjarar ævinlega á Sölvaflá í ágústmánuði ár hvert, en Ofanbyggjarar nefnast þeir sem búa „Fyrir ofan hraun“.

Fara varð á báti til að komast á flána og auðvita farið á fjörunni. Sölin var síðan tínd í strigapoka og haldið heim þegar falla tók að á ný. Þá voru sölin vind- og sólþurrkuð og síðan pressuð. Söl þóttu og þykja enn afbragsfæða enda eru þau rík af járni.

Nú þegar veldi jarðbænda er úr sögunni notar almenningur sér þessi hlunnindi norðan í Höfðanum til ánægju og heilsubótar.