„Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Reimleikar í Yztakletti (JGÓ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Reimleikar í Yztakletti (JGÓ)“ [edit=sysop:move=sysop])
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 8. júní 2012 kl. 19:54


Reimleikar í Yztakletti.


Jafnan hefur verið talið, að reimt væri í Yztakletti. Einhverju sinni var Guðrún Laugadóttir við heyskap í Yztakletti. Var hún þar ein manna, en hafði hund sinn með sér. Svaf hún í veiðimannabólinu, en hundurinn lá utan dyra. Nótt eina vaknaði hún við hávaða mikinn úti fyrir. Var hundurinn alveg trylltur. Er þetta hafði gengið nokkra stund, varð allt í einu dauðaþögn. Í sömu svifum var hundinum fleygt inn til hennar. Þegar hún fór að gæta að, sá hún, að hundurinn var steindauður. Hafði hann verið skorinn á háls.
(Almenn sögn).