Ritverk Árna Árnasonar/Kristófer Guðjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. september 2013 kl. 17:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. september 2013 kl. 17:17 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Kristófer Þórarinn Guðjónsson verslunarmaður og smiður frá Oddsstöðum fæddist 27. maí 1900 og lést 11. apríl 1981.
Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson bóndi og líkkistusmiður, f. 27. desember 1874, d. 25. október 1959, og fyrri kona hans Martea Guðlaug Pétursdóttir frá Þorlaugargerði, f. 1. mars 1876, d. 24. júní 1921.

Kona Kristófers var Þórkatla Bjarnadóttir húsfreyja, frá Hrauni í Grindavík, f. 25. febrúar 1893, d. 13. júlí 1975.

Börn Kristófers og Þórkötlu voru:
1. Guðlaugur, f. 25. desember 1922, d. 24. júlí 2002.
2. Freyja, f. 21. september 1924.
3. Guðrún, f. 10. desember 1925.
4. Guðjón, f. 26. desember 1929, d. 9. apríl 1995.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Kristófer er meðalmaður á hæð og samsvarar sér vel, liðlegur á velli og snerpulegur, enda röskur vel. Hann er fremur ljós yfirlitum, en er annars skolhærður. Hann er fremur daufgerður í skapi í almenningsframkomu eða nærri um of til baka, en í sínum hóp er hann kátur, skemmtilegur og ræðinn, t.d. í úteyjum.
Veiðimaður er hann ágætur, enda stundað veiðar frá barnæsku, mun og talinn til betri veiðimanna Eyjanna.
Lífsstarf hans eru smíðar, en stundaði áður verslunarstörf o.fl.
Hann er traustur vinum sínum, vel gefinn að gáfum og smiður ágætur. Hann er einn af þeim, sem með leikni og lipurð í veiðimennsku, hefir gert Elliðaeyjargarð frægari.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir