„Ritverk Árna Árnasonar/Finnbogi Björnsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''''<big>Úr fórum Árna Árnasonar símritara:<br>Bjargveiðimannatal.</big>'''''<br> Finnbogi var allhár vexti, þrekinn, herðabreiður og kröft...)
 
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Finnbogi Björnsson“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 17. ágúst 2013 kl. 15:04

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Finnbogi var allhár vexti, þrekinn, herðabreiður og kröftuglega vaxinn, enda afburða kraftamaður, snar og lipur í öllum hreyfingum. Hann var fríður ásýndum, sviphýr og kátur, snemma alskeggjaður og bauð af sér góðan þokka, og þó myndugleik í framkomu.
Lífsstarf hans var sjómennska, fiskveiðar og siglingar utan og innan lands við rómað þrek og harðneskju skipstjórn og mannkosti á sjó og landi.
Finnbogi var ágætur veiðimaður og lét sinn hlut ekki eftir liggja í þeim störfum, skemmtilegur úteyjafélagi, sem öllum gat komið í gott skap. Hann var að allra dómi kjarnakarl, sem mönnum var hollt að kynnast.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Finnbogi Björnsson


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit