„Ritverk Árna Árnasonar/Böðvar Jónsson (Háagarði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:
I. Fyrri kona hans, (22. febrúar 1936), var [[Ágústa Magnúsdóttir (Dal)|Steinunn ''Ágústa'' Magnúsdóttir]] húsfreyja frá [[Dalur|Dal]], f. 9. ágúst 1912, d. 24. júní 1960.

I. Fyrri kona hans, (22. febrúar 1936), var [[Ágústa Magnúsdóttir (Dal)|Steinunn ''Ágústa'' Magnúsdóttir]] húsfreyja frá [[Dalur|Dal]], f. 9. ágúst 1912, d. 24. júní 1960.

Börn Böðvars og Ágústu:

Börn Böðvars og Ágústu:

1. [[Jón Einar Böðvarsson (verkfræðingur)|Jón Einar Böðvarsson]] iðnaðarverkfræðingur, f. 27. júlí 1936 í [[Stakkagerði]].

1. [[Jón E. Böðvarsson (verkfræðingur)|Jón Einar Böðvarsson]] iðnaðarverkfræðingur, f. 27. júlí 1936 í [[Stakkagerði]].

2. Hrafnhildur Böðvarsdóttir húsfreyja, bókmenntafræðingur í Kanada, f. 28. október 1944. Maður hennar Eugene Krenciglowa

2. Hrafnhildur Böðvarsdóttir húsfreyja, bókmenntafræðingur í Kanada, f. 28. október 1944. Maður hennar Eugene Krenciglowa

3. Magnús Böðvarsson læknir, f. 4. október 1949. Fyrrum kona Lovísa Fjeldsted. Sambúðarkona hans Ásta Sigurbrandsdóttir.

3. Magnús Böðvarsson læknir, f. 4. október 1949. Fyrrum kona Lovísa Fjeldsted. Sambúðarkona hans Ásta Sigurbrandsdóttir.

Útgáfa síðunnar 5. desember 2019 kl. 18:35

Kynning.

Böðvar Jónsson frá Háagarði, verksmiðjustjóri hjá Vinnufatagerð Íslands hf. og síðar hjá Föt hf., sem m.a. rak verslanir Andersen og Lauth. Hann var auk þess í stjórn ýmissa annarra fyrirtækja. Hann fæddist 8. desember 1911 í Holti í Álftaveri, V-Skaft., og lést 18. febrúar 1997.
Faðir hans var Jón Sverrisson yfirfiskimatsmaður í Eyjum, f. 22. janúar 1871 í Nýjabæ í Meðallandi, d. 5. mars 1968.
Móðir Böðvars og kona Jóns Sverrissonar var Sólveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 2. ágúst 1879 í Fagradal Mýrdal, d. 21. apríl 1955.

Böðvar var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (22. febrúar 1936), var Steinunn Ágústa Magnúsdóttir húsfreyja frá Dal, f. 9. ágúst 1912, d. 24. júní 1960.
Börn Böðvars og Ágústu:
1. Jón Einar Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur, f. 27. júlí 1936 í Stakkagerði.
2. Hrafnhildur Böðvarsdóttir húsfreyja, bókmenntafræðingur í Kanada, f. 28. október 1944. Maður hennar Eugene Krenciglowa
3. Magnús Böðvarsson læknir, f. 4. október 1949. Fyrrum kona Lovísa Fjeldsted. Sambúðarkona hans Ásta Sigurbrandsdóttir.
4. Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, fasteignasali, f. 22. nóvember 1951. Kona hans Anna Ó. Guðnadóttir.

II. Síðari kona Böðvars, (18. nóvember 1967), var Betsý Gíslína Ágústsdóttir húsfreyja, f. 28. nóvember 1919.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Böðvar er hár maður vexti og allþrekinn um herðar, en ekki holdamikill. Hann er skolhærður, langleitur, frekar fríður sýnum, glaður og reifur í tali, ágætis félagi og duglegur til vinnu.
Böðvar var ekki mikill veiðimaður, enda skorti hann þjálfun, en hann var iðinn og kappsfullur við veiðar. Hefði hann efalaust getað orðið góður veiðimaður, hefði hann haldið áfram veiðum. En hann flutti til Reykjavíkur og settist þar að og er nú hluthafi í Vinnufatagerð Íslands H/f, en hefir alveg lagt veiðarnar á hilluna. Hann var nokkur sumur í Álsey, kom sér þar vel, fullur kæti og gleðskapar og góður viðlegudrengur.

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Íslendingabók.
• Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga ehf. 2000.
• Manntöl.
• Verkfræðingatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga ehf. 1996.
• Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.