Ragnar Engilbertsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 15:55 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 15:55 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ragnar er fæddur 15. maí 1924 og er hann sonur Engilberts Gíslasonar húsamálara og Guðrúnar Sigurðardóttur húsmóður, en faðir hans hafði stundað um langt skeið að listmálun. Telja má líklegt að það hafi haft áhrf á hann.

Ragnar lærði húsamálun, en nítján ára fór hann í Handíða- og myndlistaskólann Reykjavíkur(1943-1945). Á árunum 1948-1951 var hann við nám í Kunstakademíunni í Kaupmannahöfn.

Hógværð og lítillæti er aðalsmerki Ragnars og það var ekki fyrr en um 1980 sem myndir Ragnars birtast almenningi í Eyjum. Áður hafði hann sýnt á nokkrum samsýningum til dæmis í Charlottenborg og Reykjavík.