„Rósa Guðmundsdóttir (tónlistarkona)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Viglundur færði Rósa Guðmundsdóttir á Rósa Guðmundsdóttir (tónlistarkona)) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 22. október 2020 kl. 17:44
Rósa Guðmundsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 11. mars 1979. Hún er dóttir Guðmundar Hafliða Guðjónssonar organista í Landakirkju og skólastjóra Tónlistarskóla Vestmannaeyja og konu hans, Dagnýjar (Deng) Pétursdóttur. Systir Rósu er Védís.
Rósa stundaði klassískt tónlistarnám frá fjögurra ára til 18 ára aldurs, aðallega á píanó en einnig á fiðlu og flautu, auk þess sem hún byrjaði að fikta við gítarinn síðla árs 2001. Rósa byrjaði snemma að semja lög og texta og undanfarin ár hefur hún búið í New York þar sem hún hefur troðið upp með tónlist sína.