Prestafjara

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 13:03 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 13:03 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prestafjara

Prestafjara stendur næst Kirkjubæ sem fór undir hraun. Þó stendur hún ansi langt þaðan, enda stækkaði nýja hraunið eyjuna um 2,3 km². Klettar sem heita Prestar standa við Prestafjöru, en nyrst í fjörunni er Urðavitinn. Nafngiftin er þannig til komin að þegar gaus, voru prestar Eyjamanna þeir sr. Þorsteinn Lúther Jónsson og sr. Karl Sigurbjörnsson. Sá fyrrnefndi var nokkuð þéttur á velli en hinn mjög grannvaxinn. Þóttu klettarnir tveir nokkuð líkir þeim í útliti og mun nafnið þannig til komið.