Oddgeirshólar (Hólagötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2006 kl. 08:42 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2006 kl. 08:42 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Oddgeirshólar stendur við Hólagötu 40. Friðfinnur Finnsson, kafari og kaupmaður í Eyjabúð, byggði húsið og færði nafnið yfir á það frá því húsi er hann bjó í lengst af og stendur nokkru ofar og sunnar, við Höfðaveg. Það hús var síðan nefnt Stuðlaberg. Á jarðhæð Oddgeirshóla var lengi vel starfrækt matvöruverslun en nú eru þar til húsa tannlæknastofa og nuddstofa. Á efri hæð hússins býr Kristmann Karlsson kaupmaður ásamt konu sinni, Kristínu Bergsdóttur.