Margrét Lára Viðarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 13:34 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 13:34 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Lára Viðarsdóttir er fædd 25. júlí 1986. Hún er dóttir Guðmundu Bjarnadóttur og Viðars Elíassonar.

Margrét Lára sýndi snemma gríðarlega hæfileika á knattspyrnuvellinum og skaraði hún fram úr. Margrét Lára hefur unnið titla með öllum yngri flokkum ÍBV í knattspyrnu og varð bikarmeistari með meistaraflokki kvenna árið 2004.

Árið eftir gekk Margrét Lára til liðs við Val þar sem hún stefndi á nám á höfuðborgarsvæðinu. Valur lék þá í Evrópukeppninni og gekk liðinu gríðarlega vel. Í 8 liða úrslitum keppti Valur við þýska liðið Potsdam Turbine sem er með sterkari kvennaliðum í Evrópu. Valur tapaði þeim leikjum 11-1 og 8-1 en þrátt fyrir það var þjálfari Potsdam það ánægður með Margréti Láru að hann vildi fá hana í sínar raðir.

Margrét Lára hefur þrátt fyrir ungan aldur verið lykilmaður í íslenska kvennalandsliðinu í nokkur ár auk þess að hafa spilað stórt hlutverk í öllum yngri kvennalandsliðum Íslands.