Guðmunda Bjarnadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hallgrímsína Guðmunda Bjarnadóttir húsfreyja, fæddist 27. desember 1908 í Fellssókn í Skagafirð og lést 28. ágúst 1984.
Foreldrar hennar voru Bjarni Guðmundsson bóndi í Miðmó í Skagafirði, síðan verkamaður á Siglufirði, f. 5. febrúar 1877, d. 23. júní 1931, og kona hans Sigurveig Margrét Gottskálksdóttir húsfreyja, f. 31. ágúst 1881, d. 8. mars 1938.

Guðmunda var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Stefán giftu sig, eignuðust fimm börn, en misstu tvö þeirra ung. Þau bjuggu í Sandgerði, á Fagrafelli við Hásteinsveg 5, við Hásteinsvegi 34, við Herjólfsgötu 12 og við Bröttugötu 4.
Stefán lést 1982 og Guðmunda 1984.

I. Maður Guðmundu var Stefán Sigurþór Valdason frá Sandgerði, verkamaður, f. 17. mars 1908, d. 24. júlí 1982.
Börn þeirra:
1. Guðrún Valdís Stefánsdóttir, f. 27. febrúar 1930, d. 5. maí 1937.
2. Margrét Bjarnveig Stefánsdóttir, f. 15. júní 1931 í Fagrafelli.
3. Kristín Jóna Stefánsdóttir, f. 6. júlí 1934 í Sandgerði, d. 31. júlí 2020.
4. Gunnar Kristinn Stefánsson, f. 12. ágúst 1939 á Sjúkrahúsinu, d. 20. maí 1941.
5. Óskar Stefánsson, f. 13. desember 1942 á Herjólfsgötu 12.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.