Magnús Sigurðsson (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 18:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 18:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Magnús Sigurðsson (Háagarði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit


Magnús Sigurðsson bóndi og sjómaður í Háagarði fæddist 1796 á Skíðbakka í Krosssókn í A- Landeyjum og lést 20. ágúst 1863.

Faðir hans var Sigurður bóndi á Skíðbakka, f. 1759 í Hallgeirsey þar, d. 8. febrúar 1846 á Skíðbakka, Magnússon bónda í Hallgeirsey, f. 1722, d. 31. janúar 1786, Erlendssonar bónda þar, f. 1685, á lífi 1753, Sverrissonar, og konu Erlendar, Oddnýjar húsfreyju, f. 1686, á lífi 1728.
Móðir Sigurðar á Skíðbakka og kona Magnúsar í Hallgeirsey var Vigdís húsfreyja, f. 1719, d. 10. mars 1813, Halldórsdóttir, líklega Bjarnasonar bónda í Næfurholti á Rangárvöllum, f. 1695, d. 19. nóvember 1758, Illugasonar, og konu Bjarna í Næfurholti, Margrétar húsfreyju, f. 1658, Símonardóttur.

Móðir Magnúsar í Háagarði og fyrri kona, (24. júlí 1795), Sigurðar á Skíðbakka var Sigríður húsfreyja, f. 1770, d. 31. október 1801, Hróbjartsdóttir bónda á Bergþórtshvoli í V-Landeyjum, d. 1783, Björnssonar, og konu Hróbjartar, Geirlaugar húsfreyju, f. 1745, d. 8. ágúst 1831, Guðmundsdóttur bónda á Bergþórshvoli, f. 1692, Eiríkssonar, og síðari konu Guðmundar, Helgu húsfreyju, f. 1712, d. 23. desember 1785, Jónsdóttur.

Magnús var 5 ára hjá Geirlaugu ömmu sinni á Bergþórshvoli 1801, var vinnumaður þar 1816.
Hann fluttist að Efsta-Koti u. Eyjafjöllum 1823, fluttist þaðan að Tungu í V-Landeyjum 1826.
Hann var kominn til Eyja 1840 og bjó allan sinn búskap í Háagarði, sem var hluti af Vilborgarstaðajörðinni.
Hann lést 1863.

Kona Magnúsar í Háagarði, (6. október 1837), var Margrét Arngrímsdóttir húsfreyja, f. 24. október 1811, d. 5. júní 1873.
Börn Magnúsar og Margrétar hér:
1. Margrét Magnúsdóttir húsfreyja í Háagarði, f. 28. október 1838, d. 14. febrúar 1897, gift Guðmundi Þorkelssyni bónda.
2. Arngrímur Magnússon, f. 26. maí 1840, d. 3. september 1840.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubók.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.