Magnús Jakobsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 10:47 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 10:47 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Jakobsson, Skuld, fæddist 16. september 1903 í Breiðuhlíð í Mýrdal. Árið 1926 fluttist hann til Vestmannaeyja og var háseti á Síðuhalli hjá Guðjóni Valdasyni og síðar vélamaður. Formennsku hóf hann á Skallagrími árið 1940 og var Magnús með hann í áratug. Eftir það hætti Magnús sjómennsku og fór að stunda vélasmíði.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.