Lönd-vestri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 11:13 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 11:13 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Lönd-vestri var byggt árið 1909 af Friðriki Svipmundssyni og stóð við Landagötu 11. Einnig nefnt Stóru-Lönd. Friðrik, sem var mikill aflamaður og sjósóknari, var kvæntur Elínu Þorsteinsdóttur og voru bæði ættuð úr Mýrdalnum. Mikil reisn og myndarskapur þótti einkenna heimilið að Löndum. Húsið fór undir hraun 1973.



Heimildir